.................................................
You'll laugh. You'll cry. You'll hurl.
þriðjudagur, mars 23, 2004

Gærkvöldinu eyddi ég ein með prjónum og garni og lélegri sjónvarpsdagskrá, reyndar kíkti ég aðeins á fjörið í bingó í vinabæ um daginn eftir lagninguna og áður en ég dó úr elli fyrir aldur fram....
Mér leiddist svona mikið í gærkvöldi...og þetta með prjónið er alveg satt.
Þess vegna ákvað ég að reyna að gera eitthvað geðveikt hipp og kúl og unglingalegt í dag, ég fór í klippingu. Reyndar gat ég ekki fengið mér afró eins og mig langaði af því að ég er alltof hvít. En ég fékk hins hins vegar frekar weird klippingu, hún er öll skökk og voðalega artí fartí, þannig að núna halda allir í Fjarðarkaupum að ég sé pönkari af því að þar eru allir bara með tagl ...vildi að ég hefði fengið mér sikkersnælu í nefið í leiðinni til þess að fokka þeim upp.
Þannig þetta var s.s. hápunktur dagsins í dag, ásamt því þegar ég öskraði "fokkjú" í staðin fyrir "gjörðu svo vel" við e-n gaur sem ég afgreiddi, ok ég gerði það ekki...en vildi samt að ég hefði gert það bara svona til að hressa aðeins upp á stemmarann.

Sjitt, Bryndís er að fara til Japan í þrjár vikur á morgun, svo að það er eins gott að þið þarna úti haldið feit excellent parties á meðan, því ekki vil ég vera síðri samkvæmisljón... þó að hún hafi óneitanlega mikið forskot þar sem hún verður full í Tókýó að syngja í karókí með samúræjum og sumóköppum, nokkuð öfundsvert.

Swallow

push/click arrows to scroll.






::photo moto::


::sú var tíðin::



maystar designs | maystar designs | maystar designs