.................................................
You'll laugh. You'll cry. You'll hurl.
laugardagur, apríl 03, 2004

Það er eitthvað svo æðislega unglingalegt við hryllingsmyndir. Ég gerði mikið af því í 9. og 10. bekk að horfa á lélegar hryllingsmyndir til gamans. Ég, Signý og Kalla leigðum okkur oft myndir eins og "Horror planet" og "Boogeyman" en Freddy Krueger myndirnar, allar með tölu, voru líka í miklu uppáhaldi. Okkur fannst bara óendalega fyndið að horfa á hallærislegar tæknibrellur og lélég plot. Það gerðist þó oft að við horfðum á myndir sem okkur fannst frekar spooky, og þá fékk maður þessi gömlu góðu hryllingskikk sem virðast því miður vera að fækka með aldrinum. Ég geri það samt stundum að fara í gengnum hryllings-flettirekkann í vídjóleigum og finna nostalgíuna hellast yfir mig og ylja mér um hjartarætur...

Það gerðist þó ekki fyrir svo löngu síðan að ég upplifði aftur þennan unglingahrylling, þökk sé Bryndísi. Við horfðum nefnilega á japönsku myndina Ringu sem er reyndar ein hryllilegasta mynd sem ég hef séð fyrr og síðar. Ég var svona soldið shaken eftir hana en hefði alveg komist yfir það mjög fljótt eins og venjulega ef ekki hefði verið fyrir Bryndísi. Hún var á nálum af hræðslu lengi eftir og náði að smita mig af móðursýkinni. Hún heimtaði auðvitað að sofa heima hjá mér því ef hún svæfi ein myndi hún ganga af göflunum. Loksins þegar við náðum að róa okkur og vorum að sofna þá rumskaði ég og opnaði augun, í því opnar Bryndís augun og sér mig stara á sig og hún öskar viti fjær og mér brá svo að ég öskra og við öskrum saman í hálfa mínútu. Eftir þetta lágum við andvaka alla nóttina og mættum ósofnar í skólann daginn eftir. Og nota bene, það er svona rúmt ár síðan þetta gerðist...

Víkjum þó að öðru..

Topp 5 fyndnustu myndir:
-Airplane
-Monty Python and the holy grail
-Wayne's world
-The big Lebowsky
-Robin Hood: Men in tights


Var reyndar ekki viss með síðasta sætið...
Ef ykkur finnst þetta hljóma klisjulega þá screw you guys.

Satan

push/click arrows to scroll.






::photo moto::


::sú var tíðin::



maystar designs | maystar designs | maystar designs