| ................................................. |
| You'll laugh. You'll cry. You'll hurl. | |
|
þriðjudagur, apríl 20, 2004
Ég hef verið að sofa hjá óvininum (aka Slepping with the enemy). Þá spyr ég: hvar liggja mörkin? Hvenær á maður að láta pólitískar skoðanir hafa áhrif á gjörðir manns og hvenær ekki? Pólitíski óvinurinn eru Nike buxur og brún 4 ára gömul Gap peysa sem ég fann á öðrum helmingi rúmsins míns í dag. (Sá helmingur sem er ætlaður fyrir sambandsaðila sem er ekki til, því liggur allskonar drasl þar í staðinn). Sumir harðir femínistar á 8.áratugnum urðu lesbíur að pólitískum ástæðum. Þegar ég fór á netið áðan að leita af myndum af pólítiskum lesbíum (skrifaði: lesbians + photos + videos) sá ég fullt af myndum af lesbíum eitthvað að gamna sér og ég fór að velta fyrir mér af hvort þessar stúlkur væru þessar pólitísku lesbíur sem ég var að leita af. Búnar að gefast upp á karlmönnum og farnar að gamna sér saman sem lesbíur. Ef svo er, þá er geðveikt mikið af lesbíum vegna pólitískra skoðanna, því að þessar myndir eru til í hundraðaþúsund tali á netinu. En svo var mér bent á að þessar stelpur væru oftast ekkert lesbíur í alvörunni, ekki einu sinni vegna pólitískra skoðanna, heldur væru þær bara saman á þessum myndum til þess að skemmta öðru fólki sem finnst þetta vera sexý. Það hlaut að vera!!! Ég trúði því varla að það væru svona margar stelpur á mínum aldri búnar að lenda í karlrembum og nenntu þessu ekki bara lengur, fannst ég vera bara eitthvað út úr. En svo eru þær bara af þessu af því að það er svo gaman, sexý og sveitt.!! Þær eru s.s. lesbíur í nokkur augnablik vegna kynferðislegra skoðanna annarra. Okay, þær koma þessu s.s. ekkert við, nema náttúrulega fólk fari að segja að samfélag sem kallar á svona myndir sé pólítiskt séð gott/vont. Gleymum þeim..aftur að...Sleeping with the enemy... Skiptir það máli? skiptir það í alvörunni máli hvort kærasti manns, maki, sá sem maður er skotinn í, sá sem maður sefur hjá... sé með sömu pólitísku skoðannir og maður sjálfur? Samanhta Jones myndi segja: Nei fuck it! Carrie Bradshaw...hvað myndi hún segja? öruglega eitthvað gott... Ein vinkona mín myndi segja: Hann getur ekki verið hægri maður, það stangast á við alla heimsmynd mína, hvað á ég að gera ef hann er t.d. á móti jákvæðri mismunun og finnst staðalímyndir bara fínar? Önnur vinkona mín myndi segja: Ekki séns að ég færi að sofa hjá sveittum kommúnista, sem fyndist bara fínt að fólk eigi bara að geta keypt eina tegund af brauði eins og var í Sovétríkjunum, og er á móti öllu frelsi! (Hægri menn minnast gjarnan á Sovétríkin í öllu samhengi við vinstri menn. Vinstri menn minnast gjarnan á karlrembur í öllu samhengi við hægrimenn....) Flesti vinir mínir myndu segja: Skiptir ekki neinu einasta máli! Ég allavega henti Gap peysunni og Nike buxunum inn í skáp, ekki af því að ég vildi ekki hafa þessar flíkur í rúminu, heldur einfaldlega vegna þess að mamma bað mig um að taka til... Við Svala ætlum að fá KB-banka til að heita Kill Bill-banki í staðinn fyrir eitthvað annað uncool nafn sem hann er með í gangi. Af því að Svala er að vinna svo mikið í Fjarðarkaupum og getur aldrei skrifað neitt ákvað ég að birta brot úr dagbókinni hennar: Hæ hæ kæra dagbók! í dag var ég að vinna í Fjarðarkaup og ég náði að plögga færibandið á kassanum þannig að það fór geðveikt hratt. Ég tók þríhyrndan konfektkassa og festi ofaná endapunktinn á færibandinu, þannig að þegar viðskiptavinurinn setti vörunar (helst margar) á bandið gaf ég bara í og vörunar brunuðu mjög hratt áfram á bandinu þangað til að þær komu að konfektkassanum þríhyrnda sem virkaði þá eins og stökkpallur og vörunar skutust allar af færibandinu og út um eina rúðuna og út á bílastæði... það var ógeðslega fyndið... Einn viðskiptavinurinn fékk rjómaost í beint í augað og annar fékk 32 dollur af hundamat í hausinn, þetta var eins og hríðskotafallbyssa! Allavega þá er ég enn þá með stór brjóst og single. Þannig að það er eiginlega ekkert að frétta.. held bara áfram að reyna að vera hörð og cool.. Ætla að missa 10 kíló í dag, ég er orðin 42 og held að 10 í viðbót megi fara.. verð að fara í átak eða body pump eða eitthvað...ohh ég er að deyja.. takk fyrir að hlusta á mig kæra dagbók, góða nótt! Svala... Ohh hún er svo steikt, þetta með stökkbrettið var ekki einu sinni fyndið... Bryndís
push/click arrows to scroll.
|
::photo moto:: ::sú var tíðin:: |