| ................................................. |
| You'll laugh. You'll cry. You'll hurl. | |
|
fimmtudagur, apríl 29, 2004
Ég hlakka svo til að I could hurl. Á morgun rennur nefnilega upp sú hátíðlega stund að ég vinn minn síðasta dag í Fjarðarkaupum fyrir fullt og allt. Síðustu 2 mánuðir sem ég hef unnið þar hafa verið algört hell í krukku en núna er sumarið komið með blóm í haga og no more mr. Fjarðarkaup for me, no sir. Ég var að hugsa um að gera e-ð gott úr þessum merkilega degi, t.d að mæta í górillubúning á afgreiða í honum á kassanum allan daginn, mér þætti allavega gaman ef ein kurteis górilla myndi afgreiða mig úti í búð. Já eða að hoppa upp á kassann kl. 5 þegar mest er að gera, láta spila full moon í kerfinu og múna...það væri gaman. Eða bara mæta full, með landa, sígó og haglabyssu í blettóttum afabol, berja út úr mér tvær tennur og heimta að allir kölluðu mig Cleetus eins og virðist vera í tísku í háskólanum. Um kvöldið ætla ég að vera partýanimal eða partýgórilla, bæði vegna þess að þetta er hátíðlegur dagur og af því ég missti víst af klikkaðasta djammi ársins síðasta föstudag þegar dimmisjón í MH var. Því ég hélt að ég væri að fara í inntökuprófið fyrir fornámið í Myndlistaskólanum daginn eftir....já hélt segi ég því ég tók ekki prófið. Ég var of upptekin við það að láta líða yfir mig eftir korter við trönurnar, þ.e. eina mínútuna stóð ég við trönurnar að teikna, þá næstu lá ég á þeim á gólfinu með alla í salnum yfir mér. En ég var s.s. í ruglinu eftir þetta þannig ég fer víst í sjúkrapróf sem er eftir mánuð...sad keis en samt frekar fyndið. Ég var að vona að ég hafi dottið geðveikt kúl en ekki svona "bold and beautiful style"...svo skilst mér á stelpu í MH sem var með mér í prófinu að ég hafi bara dottið frekar asnalega...ekki nógu gott, verð að æfa mig. Swallow
push/click arrows to scroll.
|
::photo moto:: ::sú var tíðin:: |