| ................................................. |
| You'll laugh. You'll cry. You'll hurl. | |
|
fimmtudagur, apríl 08, 2004
Kill Bill II er að fara að koma... thad eru góð tíðindi. Elsa kom með þá pælingu ad við tvær myndum mæta í brúðarkjolum á frumsýninguna, the bride is back. Eftir fjóra bjóra fannst mér það mjög góð hugmynd, en án þeirra, þá finnst mér hún tæp. Ef að ykkur, kæru vinir, finnst eitthvað athugavert við þessa byrjun á blogginu mínu eftir nánast 3 vikna fjarveru þá er ég sammála ykkur. Ég bara veit ekki hvar ég á að byrja og hvernig ég á að segja frá lífinu síðustu þrjár vikur án þess að hljóma óþolandi. Ég, Anna Pála, Keli og Lára vorum saman í gær og vorum að tala um þetta, hvernig maður á eiginlega að segja frá ferðinni án þess að vera pain in the brain. Ég kom með þá hugmynd að við myndum alltaf segja: "þarna, krakkar, frænka mín var í japan og það var..." í staðinn fyrir að segja: "Hey sko þegar ég var í japan þá var sko...". Síðan notuðum við þetta heilan dag þegar við vildum minnast eitthvað á gjörðir okkar í Japan. Það gekk ágætlega, en svo varð þessi frænka bara pain in the brain líka, hún fór líka að minni mig óhugnanlega mikið á nokkrar manneskjur sem verða gjarnan mjög tæpar í sögunum sínum um ferðir sínar til útlanda og finnst jafnvel merkilegt að hafa evrur í veskinu sínu, í djóki. bonk bonk... no more (mister nice guy) about that..(is the 70's show) Þessi ferð mín var, að ég held, skemmtilegasta ferð sem ég hef á ævi minni farið í til útlanda. Fyrri ferð mín til Japans var alls ekki nógu góð ef ég miða hana við þessa, Japan er fyrir mér núna sá staðar í heiminum sem ég myndi vilja flytja til helst á morgun. Svo ekki sé minnst á: Kvenfélag Austur Hokkaido, Fancy Hostessbar í Ginza, Fruits fatamadness í Harajuku og nokkrar innstungur..... sem ég keypti á flugvellinum, ohh talandi um innstungur, reyndar var þarna með okkur sá allra fallegasti japani, ef ekki bara mannvera sem ég hef á ævi minni séð... ég horfði bara á hann frodufellandi og skjálfandi og sagði: "mammmma". Það var það fyrsta sem mér datt í hug, skil ekki af hverju, mér finnst það reyndar óhugnanlegt en ég held að það tengist kannski þessari græðgi sem maður fékk sem barn þegar maður sá brjóstin á mömmu sinni... og vildi ráðast á þau og svolgra þeim í sig, hömslulaust og af áfergjan..... Við stelpunar vorum allavega í miklum áfergjan fíling í kringum hann... og vitið þið hvað.. ohh, hann sagði við okkur að hann myndi ekkert eftir því þegar við hittum hann fyrst á flugvellinum. Honum hafi svo brugðið yfir fegurð okkar að hann fékk eiginlega black out og varð eins og vélmenni á meðan hann heilsaði okkur. Við stelpurnar trylltumst náttúrulega endanlega yfir þessari rómantík, pælið í því að gaurinn fái bara black out þegar við komum þarna, að mínu mati eins og hauslausar körtur, en að hans mati eins og....eins og ... eitthvað sem veldur hjá manni black outi, sem gæti verið eins og.... að sjá Jude Law og Stuart Townsend ásamt japaninum (Yazu) nakta undir hvítu hálfgegnsæju tjulli...samt ekki alla þrjá saman... eða eitthvað.. Hehhe æ þetta er mikil steik hjá mér í dag, ég er líka frekar steikt eftir alla tímaskekkjuna, en vá hvað mér líður samt vel. Vildi bara að skólinn væri ekki hangandi yfir manni, allt í rugli, svo er ég líka með tvær bólur á enninu sem er frekar súrt. Ég ætla ekki að segja ykkur meira frá ferðinni, þið verðið að komast að afganginum sjálf. í dag fór ég á risastóran flóamarkað inn í "Laugardagshöll" dana (Forum). Það var svo mikið af flottu sixties og seventies dönsku dóti þarna að hausinn á mér byrjaði að snúast. Ég keypti 2 ljós inn í íbúðina okkar Svölu, 5 diska og sykurkar. Áður er ég búin að kaupa í Japan allavega 8 glös, 4 tebolla, 6 traditional skálar sem og hello kitty plastskálar, tannburstaglas, handklæði, 1 nammiskál, 2 myndaramma, 1 ipod, 3 skó, 8 matarprjóna og allskonar japanskt plast drasl hello kitty og svo veggklukku. Svo keypti ég aukaferðatösku til að troða þessu ofaní ásamt náttúrulega fötunum sem ég keypti eða fékk á annan hátt. Samt hef ég ekki eytt einhverjum feitum pening því þetta var allt saman mjög ódýrt því langflest af þessu var keypt í 100 yena búðum, þar sem allt kostar 100 yen stykkið og yenið er á 69 krónur. Frænka mín hún var einu sinni að spila póker í Kambódíu og hún vann og fékk að launum að rasskella alla karlmenn í 2 fótgöngusveit kambódíska landhersins. Er einhver til í að stofna með mér Menningartengsl og menntatengsl Hafnarfjararðar og Reykjavíkur? Þá er það þannig að ég sem hafnfirðingur fæ að gista heima hjá ykkur í Reykjavík um helgar þegar ég nenni ekki að taka leigubíl heim. Svo gistið þið hjá mér í Hafnarfirði eftir djamm í 220 Hafnarfjörður.. (??) Jæja nú er svona klukkutími í það að ég verði svöng og þá ætla ég að prófa að fá mér durum með shawarma rétt hjá Runddelen sem Atli, Leó og Orri eru búnir að mæla svo oft með. Ef það stenst ekki kröfurnar mínar þá ætla ég að taka durumin og stinga honum í augun á þeim þegar ég kem heim. Ef hann stenst kröfunar þá er ég að íhuga að taka með mér heim nokkra duruma og stinga í munninn á liðinu. Þakkarlisti: Þið þarna á Íslandi, þið eruð frábær og ég elska ykkur eiginlega bara. Rúna, ég stóðst freistinguna að kaupa ekki alveg eins föt og þú í HogM, Auður takk fyrir skráninguna, Rutan eee þú ert hávaxinn, Elsa takk fyrir að vera svona fyndin ég er búin að stela svona 100 bröndurum frá þér og nú halda allir að ég sé fyndinn, Svala, þín er saknað og ég bara kaupi og kaupi drasl handa okkur í íbúðina því það er eins gott að það verði úr þessu því að annars sit ég uppi með fullt af matarstellum og ljósalömpum... Minasan arikato gosaimazda Keli san Tinna san Maja san Anna Pála san Raggi san Lára san jobbarai. Svala og Signý! Munið þið eftir karateæfingunum í hinu húsinu, er einmitt að horfa á eina æfingu núna út um gluggan... Æ ég verð að segja eitt að lokum, japanskir buisnesmenn eru efni í heila bók, sá nokkra sem voru blindullir að koma í og úr lestunum á kvöldin, allvega hangandi fullir og vissu ekkert í sinn haus, greyin, búnir að vinna 13 tíma og hanga endalaust í lestum og svo þurfa þeir að fara á fyllerí með viðskiptavinum eftir vinnu, drekkandi, skálandi og syngjandi í karokí, til þess að vera kurteisir, (sumir syngja fáááránlega illa) og japanir þola ekki áfengi, varla meira 3 bjóra. Komst af því að orðið "drukkinn" á japönsku er "jobbaræ"... ég hef aldrei heyrt nokkurt orð sem lýsir þessu ástandi betur.. ..jobba ræ..ræ ræ ræ jobbí jebbí jobba ræ... Það var þó nokkuð af jobbaræ töktum í ferðinni.. sem minnir mig á það þegar ég hitti Jim Carrey í Boston 2001, það var gott jobbaræ.
push/click arrows to scroll.
|
::photo moto:: ::sú var tíðin:: |