.................................................
You'll laugh. You'll cry. You'll hurl.
föstudagur, apríl 16, 2004

Við Auður héldum upp á afmælið okkar í gær.
Í tilefni að því dreif fólk víða að til að afmælast með okkur.
Afmælið byrjaði í algjöru rugli, efri hæðin á Dillon var í ógeðsástandi en þökk sé fyrstu gestunum, túbuleikaranum Finnboga og fleirum að þetta varð síðan ein allsherjar stuðveisla.
Ég fékk margar góðar gjafir, fyndasta gjöfin er líklegast innrömmuð uppskrift af tékkneskri súrkálssúpu með mynd af súkálssúpunni hans Finnboga frá því við vorum í Slóvakíu 1998. Svo gaf Finnbogi okkur Auði líka hráefni í súpuna.
Næst fyndasta gjöfin er líklegast Haribo nammipoki pakkaður inn í álpappír, ég veit ekki frá hverjum sú gjöf var, það er reyndar svolítið slæmt að enginn gjafanna var með kort, þannig að ég er frekar confused...
Fyndasta gjöfin sem Auður fékk er pottþétt innrömmuð mynd af Birni Bjarna skreytt íslenska fánanum sem hún fékk frá Andreu...

Myndir frá afmælinu eru hér:

Dyravörðurinn á Dillon er svo hress gaur, þið vitið þessi með síða hárið, hann er svo góður á því að ég hef sjaldan kynnst öðru eins, ef ég væri blaðamaður myndi ég taka við hann viðtal. Hann er alltaf svo ofurchillaður og samvinnuþýður að hann gerir aldrei neitt annað en að gleðja mann þó svo hann sé nú alveg að sinna sínu starfi, bara á rólegu nótunum. Svo er Andrea Jóns líka alltaf ótrúlega góð á því. Eftir nokkra bjóra fer ég alltaf til hennar að segja eitthvað, bara eitthvað bull, bara af því að mig langar til að tala við hana, og hún skilur mann alltaf og tekur óskalag eins og ekkert sé og mig minnir að hún hafi kysst mig í gær að tilefni af afmælinu. Ekki furða að maður fari oftast á Dillon þegar svona fólk eins og chillaði dyravörðurinn og Andrea eru þarna...

Hey, Raggi vitri benti mér á þessa síðu. Fólk er hvatt til þess að fasta til þess að styðja forseta Bush:
"Answer a call to personally fast once a month for President Bush.
God is raising up multitudes of Christians (regardless of political affiliation) to fast and pray for the holiness of President George W. Bush and our nation. Join us in God's grassroots movement."
tékkið á þessu hér: http://www.heartlight.org/fast/
...Það sem fólk gerir í nafni Guðs..

Bungalow Bill



push/click arrows to scroll.






::photo moto::


::sú var tíðin::



maystar designs | maystar designs | maystar designs