| ................................................. |
| You'll laugh. You'll cry. You'll hurl. | |
|
miðvikudagur, maí 19, 2004
Í Fréttablaðinu 16. maí 2004 birtist grein sem bar titilinn Da Vinci slær ekki Nýja testamentið út. Þar fjallar Hr. Karl Sigurbjörnsson biskup lítið eitt um bókina Da Vinci lykillinn. Hann segir að hann hafi ekki mikla trú á sagnfræði bókarinnar “..nema þá ef vera mætti til að vekja athygli á hinni sönnu og sígildu spennusögu sem Nýja testamentið segir um Jesú Krist, Drottinn og frelsara heimsins”. Tvennt vekur upp spurningar við þessa einu setningu: Numero uno) Ætli biskupinn lesi nokkurn tíman bók sem honum finnst slá Nýja testamentinu út?..og ef það svo ólíklega gerist, á hann eftir að segja það? „Já! Hún sló Nýja testamentinu svo sannarlega við, miklu skemmtilegri og áhrifaríkari, þessi karakter Donald Smith er geðveikur karakter, Jesús er eins og ryk í teppi miðað við þennan gaur..Svo finnst mér líka Harry Potter 3 og 4 miklu betri og ég held að allar 7 Harry Potter bækurnar eigi eftir að slá öll bréf og bækur Biblíunnar út, allavega pottþétt fjórðu Mósesbók, Esrabók og Opinberunarbókina. Mér finnst svo sannarlega Harry Potter 4 miklu skemmtilegri en Mósesbók 4, enda er Ron og Hermione srax mun fullmótaðri persónur í Eldbikarinum en Móse og Aron við lok 4 Mósesbókar...” Numero duo) Af hverju er aldrei nóg að segja bara Jesús án þess að þurfa að bæta við einhverjum setningum eins og .. "..Jesús, hinn kærleiksríki og eilífi...” “Jesús, sem situr Guði til hægri handar og frelsar vor...”? Það er eins og menn sem tala svona haldi að fólk viti ekkert um hvern þeir eru að tala og þess vegna þurfi að útskýra við hvern er átt! Eða þá að við þekkjum svo rosalega marga sem að heita Jesús að við vitum ekkert um hvaða Jesúinn hann er að tala..: Hr. Karl Sigurbjörnsson í útvarpinu:..hinum eilífa brunni sem birtist í Jesús Kristi... Siggi heima í stofu: ...Jesús..Kristi..?... Bíddu hveeer er það aftur...? Hr. Karl Sigurbjörnsson enn í útvarpinu: ...frelsara heimsins og Guðssonar... Siggi enn inni í stofu: Æ, Já einmitt sá gaur! Nú man ég um hvern hann er að tala...ég fór eitthvað að hugsa um sundlaugarvörðinn í Gömlu lauginni hann hét einmitt einhverju svona nafni... Jæja eftir þetta guðlast skulum við fara saman með eina bæn: (þið megi ráða hvað þið segir hér) ........ ........ ........ ...Takk og Amen Pís out Brabraham
push/click arrows to scroll.
|
::photo moto:: ::sú var tíðin:: |