.................................................
You'll laugh. You'll cry. You'll hurl.
fimmtudagur, maí 20, 2004

Löng tilkynning:

Ég er að horfa á Atla og Svölu eigast við upp í rúmi. Frekar fallegt, en ég er hins vegar ekki falleg, mér líður ömurlega.

Ég sló persónulegt met í gær (2. sætið eftir karókídæmið mars 2003) , ég var svo ógeðsleg að ég hefði bara átt að éta mig áður en ég fór út á meðal fólks.
Ég og Svala byrjuðum á glæsibullunni A. Hansen í Hafnarfirði enda erum við feitir Hafnfirðingar...svona þannig...
Hittum Ömma og fórum með honum í strætó (inn í Kópavog) og þaðan í leigubíl.
Strætóbílstjórinn var víst að hætta þetta kveldið og var ekkert á leiðinni inn í Reykjavík. Ég reyndi að fá hann til að keyra okkur niður á Dillon og mér fannst það svo geðveik pæling að fara í strætó niður Laugarveginn og labba út úr honum fyrir framan Dillon.
Strætóbílstjórinn var samt ekki að kaupa þessa hugmynd.
Síðan áttum við Svala og Ömmi góða stund í einhverjum garði og þaðan fórum við niður í bæ.
Ég man eftir að hafa gengið inn á Dillon með einhvern fáranlegan frygðarsvip sem ég beitti á dyravörðinn því að ég hélt eiginlega að ég væri 18 ára skílrikjalaus stúlka, sem ég var ekki.
Þessi frygðarsvipur var frosin á mér allt kveldið og ég man ekkert, en ég talaði þó víst við fullt af góðu liði, sem mér þykir frekar leiðinlegt því að ég man ekkert eftir því.
Vona að ég hafi ekki verið að tala um gumpinn á mér eða eitthvað álíka ömurlegt.
Ég er búin að fá símhringingar í morgun frá fólki sem vill útkljá mál frá því í gær en ég er svo góð á því að ég man ekki einu sinni eftir því að hafa hitt þetta fólk...þannig að enginn þarf að hafa neinar áhyggjur varðandi eigin hegðun, vona að þið getið jafnframt gleymt minni...

Ég vaknaði í morgun heima hjá Atla Bollasyni sem ég geri stundum eftir glaumfarir. Það er góð pæling og ég er mjög ánægð með hann Atla og hans fjölskyldu í þessum málum. Þó svo að Atli hafi öskrað á mig í gær: "BRYNDÍS ÞEGIÐU!" og ég var bara "...FINE!..." þá er ég hæstánægð.

Svala er ekki lengur sad case hún er frábær og ef einhver ykkar kallar hana sad case þá mun ég éta sá og hin sama, Svala var nefnilega þrusugóð í stöðu stuðningspinna í gær. Ef hún hefði ekki verið þarna hefði ég alveg eins getað verið dyramotta. Orri var víst líka ágætis stuðningspinni og svo einhverjir Englendingar...

Þið sem hittuð mig!
Hringið í mig ef það er eitthvað sem er ekki á hreinu, við getum farið á gráa köttinn eða eitthvað...

Svala er að borða snakk og hlusta á The Rutles, mig langar til að borða snakk líka... bráðum ætla ég að borða geðveikt mikið að snakki og hætta þessum gin í tónik pælingum, frekar að borða svona 7 poka af snakki...


Þegar Svala deyr ætla ég að spila fyrir hana:
- Sesons in the sun
- ..og eitthvað fleirra.. á eftir að pæla í því betur við tækifæri...

ahhhh
BB

Og af því að geðveila mín er í lægð í dag vil ég benda á geðveikasta blogg landsins (staðhæfing sem á að vera staðhæfing) -> Ljensherran af Kaffisterkt. Þessi herramaður er einstakur, ég vona að geðveila hans vari að eilífu, amen.

push/click arrows to scroll.






::photo moto::


::sú var tíðin::



maystar designs | maystar designs | maystar designs