| ................................................. |
| You'll laugh. You'll cry. You'll hurl. | |
|
mánudagur, júní 21, 2004
Í síðustu viku urðu þau leiðu mistök á Skrifstofu Forseta Íslands að hópi fólks sem átti að bjóða til Grillsumarbústaðarferðar með forsetahjónunum var í staðinn sagður vera verðlaunahafar hinnar Íslensku Fálkaorðu. Sljó skrifstofustúlkan ruglaði saman tveimur listum fólks og fór það svo að hinir raunverulega Fálkaorðuhafar fóru í grillsumarbústaðarferð með forsetahjónunum á meðan aðalgrillsumarpartýliðið hópaðist til Bessastaða og fengu fálkaorður nælda í brjóstið í hinum mesta miskilningi. Margir urðu við það hvumsa og ekki fór það leynt að margir urðu eins og spurningarmerki í framan. En rétt skal vera rétt. Hinir raunverulegu Fálkaorðuhafar, valdir af orðunefnd hins íslenska þjóðríkis, eru þessir: Baldur Ágústsson fyrir að líta út eins og ljúffeng kjötbolla þó svo að honum finnist þær ekki góðar og borði þær í raun örsjaldan. Með þessu útliti sínu hefur Baldur sýnt þjóðinni fram á að einstaklingurinn þarf ekki að láta persónulega reynslu og skoðanir sínar útiloka þá víðsýni að líkjast því sem hann hefur ekki miklar mætur á. Þannig gæti t.d. Davíð Oddsson fengið sér sítt að aftan eins og Jón Ásgeir. Eins hefur Baldur með útliti sínu aukið sölu á tilbúnum kjötbollum í brúnni sósu í Nóatúni um 340%. Starfsmenn Nóatúns segjast eiga fullt í fangi með að selja þessar svokölluðu "Baldursbollur" eins og gárungar hafa nefnt þær. Erna Gunnþórsdóttir, a.k.a. Erna G. Erna hefur síðastliðin vetur klætt sig aðeins tvisvar sinnum í spjarir og hulur á 8 mánaða tímabili. Í bæði skiptin tolldu fötin stutt við. Erna sló út íslandsmet Fjalla-Eyvinds í mars síðastliðin. Fjalla-Eyvindur þessi hafði dvalið langdvölum nakinn upp á hállendi Íslands veturinn 1776- 1777 en dó að lokum úr C-vítamínskorti og lugnabólgu. Erna G er þó enn langt frá því að deyja úr kulda og vosbúð þrátt fyrir suðaustan gadd, 18 vindstig og fannfergi í febrúar síðastliðinn. Þess má einnig geta að Erna þykir verða einkar vel að verðlaununum komin þar sem hún hefur lítið kvartað og oftar en ekki fúlsað við þeim klæðum sem hinir og þessir borgarar hafa ýtt að henni. Veðurfræðingar vilja þó draga met hennar í efa þar sem síðasti vetur var mun mildari en veturinn 1776-1777 er Fjalla-Eyvindur hljóp um nakinn. Auk þess virðist Erna hafa tvö manngerð fitulag á bringunni sem hafa hingað til getað veitt henni vörn fyrir lugnabólgu og ofsóknum risavaxinna tröllskessna. Talið hefur verið hingað til að skessur þessar hafi neitað Fjalla-Eyvindi um C-vítamín á banalegunni til þess að refsa honum fyrir óvilja sinn til ástarathafna með þeim systrum. Brottflutti Íslendingurinn Salomón Daníel Húsönd er flutti til Mið-Austurlanda aðeins 3 ára gamall um miðja síðustu öld. Salómon þessi hefur verið að gera garðinn frægan um heim allan og komst nýlega í fréttirnar fyrir þann árangur sinn að vinna heimsmeistaratitilinn í Feluleik. Salómón tók sér upp nafnið Saddam Hússein við komu sína til Mið-Ausurlanda og hefur verið þekktur undir því nafni síðan. Í hinnni alþjóðlegu feluleikjakeppni "hide to night" er fór fram síðasta vor, tókst Saddami að fela sig í allnokkrar vikur á meðan aðrir keppendur fundust allir á fyrsta sólarhring keppninar. Saddam hefur sýnt að dugur forn Íslendingsins, Gísla Súrssonar, lifir enn í heimi nútímans, en Gísli vann hina alþjóðlegu feluleikjakeppni síðastur Íslendinga árið 957. Eins fengu Vestur-Íslendingar allir saman eina orðu. Íslenskufræðingar bentu á þennan hóp og sögðu að það væri ótrúlegt að þessi litli hópur kynni enn þann dag í dag 7 orð í íslensku þrátt fyrir að flestir Vestur-Íslendingar hafi aldrei í raun heyrt málið talað. Orðin voru: Gimli, Grammófónn, Nei, Bara, Göndull, Jólakaka og Kiwí. Ástþór Magnússon fékk sérstök heiðursverðlaun fyrir leik sinn í barnaleikritinu "Eldfærin" en þar fór Ásþtór með hlutverk hundins "Kaspers" sem var "með augu eins stór og mylluhjól". -------------------------------- Um helgina voru afmæli tíð... Alma snillingur Joensen átti 20 ára afmæli þann 20 júní.. næst mun hún eiga 21 árs afmæli 21. júní, ekki spyrja mig hvað gerist þegar hún verður 31 árs.. það verður eitthvað feitt ef ég þekki hana rétt.. BomBay
push/click arrows to scroll.
|
::photo moto:: ::sú var tíðin:: |