| ................................................. |
| You'll laugh. You'll cry. You'll hurl. | |
|
sunnudagur, október 31, 2004
GEF MÉR FIVE kynnir í samvinnu við KB-banka, Klink og Bank og KaffiBarinn: GEF MÉR K og GEF MÉR B Undanfarið er búið að vera kalt úti en ekki í dag. Í dag er rigning og ágætis veður nema fyrir utan Aðalbyggingu Háskólans þar sem, að einhverjum ástæðum, alltaf blæs köldu. Kannski er djöfullinn þar að verka að reyna að fæla fólk frá því að stunda guðfræði og koma á kaós í stjórnun skólans, því að sumir stjórnendur hafa einfaldlega ekki nennt að mæta til vinnu vegna þessara köldu vinda framhliðar Aðalbyggingarinnar. En guð kann nú ráð við prakkarastrikum djöfla og lét því smíða tvær hurðar, ekki síðri en aðaldyrnar, á afturhlið Háskólans. Því geta stjórnendur og guðfræðinemar lumað sér inn að baka til, djöflinum að óvörum. Þetta var samt ekki það sem ég ætlaði að tala um. Heldur það að kuldinn og rigningin benda til þess að nú sé veðurguðunum orðið alvara með haustkomunni. Í dag er það hér með tilkynnt að það er komið haust, og jafnvel vetur, ef menn vilja vera að hanga sig á dagatalið. Ég veit það nú alveg að flestir vita að það er komið haust fyrir löngu síðan, en ég er kannski svona sein á mér því að sumarið var gott. Vil ég reyna að halda í það eins lengi og hægt er. En það er búið. Já KB-sumarið mikla er búið. KB - sumarið 2004 Ótrúlegt má þykja að það séu tilviljanir einar sem að komu við sögu KB-sumarsins mikla. - Sumarið 2004 var KB-banki stofnaður og varð sá banki strax einn sá öflugast sem Ísland hefur alið. - KaffiBarinn var hiklaust bar sumarsins í mínu lífi. Þar drakk ég einungis Kaldan Bjór en ef KaffiBollinn vildi komast að, var oftar en ekki farið á Kaffi Brennsluna. - Klink og Bank stóð undir mögnuðu listalífi, sveittustu tónleikum sumarsins og frábærum fyrirlestrum. Hver var svo stjarna sumarsins? Jú það var enginn annar en Kalli Bjarni. Kalli Bjarni þjófstartaði sumrinu í vor með sigri í Idolinu. Hann ferðaðist síðan um allt land með sumarfyrirbærinu "Bylgjulestinni". Kalli Bjarni var hiklaust nýstjarna sumarsins. Klessun Bílsins: Ömurlegasta fyrirbæri sumarsins var vissulega dánardagur duggunar, já þegar ég Klessti Bílinn minn, KB206. Af Pólitík: Kosningar í Bandaríkjunum Kerry v.s. Bush (no matter who wins, we will loose): Pólitískar umræður sumarsins snérust að mestu um Kosningarnar í Bandaríkjunum þar sem að þeir Kerry og Bush eru sigurstranglegastir. Kraftwerk og Brown: Þeir tónleikar sem að hafa að margra mati staðið upp úr eru tónleikar Kraftwerks svo og James Browns. Helstu mótmæli sumarsins fólust í því að fá Forsetan til þess að Kvittera ekki undir Bann á núverandi eignarrétti fjölmiðlanna. En helstu gestir Forsetans þetta sumarið voru Frú Blair og Kóngurinn í Svíþjóð. Reyndar var Frú Blair ekki hér á vegum Forsetans en henni hefur nú líklegast verið boðið í Kaffi á Bessastöðum. Þess má geta að skemmtilegasta boð sumarsins var einmitt boð Forsetans í Kvöldverð á Bessastöðum, þar sem boðið var upp á allt á milli Kavíars og Brauðtertna, Kampavíns og Berjates. Veikindi sumarsins voru Kossasótt og Beinbrot (krassaði á bretti)... og þetta er nú alveg ótrúlegt ha! Hvað á maður að halda? Blogg sumarsins og þær síður er ég hékk mest á í vinnunni voru: Kaffisterkt og Barnaland.is (ekki má vanmeta Barnaland, þar eru bestu bloggin). Kveðjur Ms. B P.s. Á morgun eru kosningarnar, mér er orðið illt í maganum af spenningi, svona eins og mér leið alltaf fyrir hvern einasta óæfða píanótíma á unglingsárum mínum sem að leiddu til þess að ég varð líkamlega veik og varð að hætta í Tónlistarskólanum. Ég vil þakka Kalla Jóhanni fyrir að benda á heimasíðu sinni á nýjasta Eminem myndbandið sem endar einfaldlega á orðinu VOTE! Gott og gilt orð, sennilega komið af orðinu "WHAT!" sem var það orð sem franski konungurinn lét út úr sér þegar hann heyrði fyrst talað um lýðræðislegar kosningar. Skoðið myndbandið hér! Athyglisvert myndband út frá mörgum sjónarhornum... en um það verður ekki rætt hér, en svo má líka finna mikið af klámi á netinu sem að aðrir geta haft gaman af, en um það verður ekki heldur rætt hér. Bless.
push/click arrows to scroll.
|
::photo moto:: ::sú var tíðin:: |