| ................................................. |
| You'll laugh. You'll cry. You'll hurl. | |
|
þriðjudagur, október 26, 2004
Tónlist var fyrirferðamikil um helgina. Airwaves var uber alles, ég held að það hljóti alltaf gaman á Airwaves ef hún heldur uppteknum hætti. Ég ætla ekki að fjölyrða um efni hátíðinnar heldur læt ég Keipdúnk Atla um það. En það helsta sem stóð uppúr voru The Shins, Hot Chip, Sahara hotnights sem eru mér ný ædol í kúli, Adem voru fínir, Mugison það sem ég sá af honum, Trabant fyrir sjóið, eins voru Jagúar og Gusgus fyrir gott dansidúkkuelement (svo er President Bongo líka mad FH-ingur). Þar hafiði það. Að vísu endaði helgin mín á því að taka venjulega fokk-ég-á-eftir-að-skila-stóru-verkefni-sem-ég-get-ekki-klárað-fyrir-morgundaginn-vonleysis-panikk, en auðvitað reddast það alltaf. Síðustu daga hef ég líka verið að klára gegnumhlustun diskanna sem ég fékk í afmælisgjöf sem voru Blueberry boat með Fiery Furnaces, Schulmadchen report, Smile með Brian Wilson og Chelsea Girl með Nico og líkar með endemum vel. ... Að leiðinlegri málefnum er ég enn og aftur komin í skólakrísu, ég hef ekki hugmynd um hvað ég ætla að gera eftir fornámið, finnst ég ekki vera góð í neinu og hausinn minn er jafn tómur og....e-ð tómt...ílát... Ef einhver á CDM-vél eða "Career deciding machine" hafið samband við mig í síma 865 6005. Svali push/click arrows to scroll.
|
::photo moto:: ::sú var tíðin:: |