................................................. |
You'll laugh. You'll cry. You'll hurl. | |
fimmtudagur, nóvember 11, 2004
En það bar til um þessar mundir, að boð komu frá Háskóla Íslands, að skrásetja skildi margar ritgerðir. Þetta var fyrstu ritgerðarskrif á þessari önn og var gjörð er nóvembermánuður var næstum hálfnaður. Fóru þá allir að skrifa ritgerðir, hver að sínum hætti. En þá tók Gefmerfive-stúlkan, dóttir Jósefs, sonur Elí, sonur Mattas, sonur Leví, sonur Melkí, sonur Jannaí, sonur Amoss, sonur Bjarna rapps, sonur Símeons, sonur Júda, við boðunum og sagði: Nóg er komið, ég mun skrásetja ritgerðir og ekkert annað. Vegna anna og jafnvel tímabundnar bloggþreytu hyggst ég taka mér frí um hríð, aðeins stutta hríð, frá skrifum sem þessum. Ég er þreytt og lúin ,þjáð af þönder skrifum fékk ég sótt Ég mun nú aftursnú'í bráð kannsk'á Þollák eða Nýársnótt Og nú kemur Æri-Tobbi með eina góða: Ribí ribí ribí ræ Ég segi bara bæ Sussum sussum og svei-i brund Komin tími á ég deyj-i, um stund. Fleira var það ekki í kvöld Veriði sæl Baróninn af Bavaríu P.s. lesiði bara Biblíuna, jólin að koma og svona
push/click arrows to scroll.
|
![]() ::photo moto:: ::sú var tíðin:: |