.................................................
You'll laugh. You'll cry. You'll hurl.
miðvikudagur, desember 22, 2004

Finnið 10 villur:

Orðabelgur Omars ofurmennis. Höf. Auður Magndís Leiknisdóttir
"Þessi bók var skemmtileg. Hún er um strák sem fer í afmæli og stelpum var boðið og stelpurnar sáu afmælisbarnið á kassanum og Ormar ætlar að æfa sig að skrifa sögur fyrir stafapróf."
-Guðrún S. 10 ára

-i-i-i-i-i-i-i-i-i-i-i-

Hér er svo eitt fallegt sveitaljóð eftir okkur af lata sveitapiltinum:

Sat sonur inni og gerði fátt
aldrei neitt síðan fæddist
Sat við smölun, svaf við slátt
Oft lá í túni og mæddist
Enginn tók nú soninn í sátt
því hann gerð'ei gagn og hræddist
að slasast við rakstur eða ganga á gátt
í tjúllpils sig hann klæddist

Lag: Immanúel oss í nátt

Annars er allt frekar gott stuff að frétta.
Þrjú á palli gera sitt gagn, tvær útskriftaveislur í gær.
Elín og Ragga voru svo indælar að sjá á mér aumar og bjóða til drykkju og matar. Eins og venjulega gat ég skemmt fólki með lélegri enskukunnáttu, fer samt að verða þreytandi, ég veit samt ekki hvað ég get gert, þetta er ömurlegt!

Ég er farin til Skotlands þar sem grasið grær og ávextirnir vaxa á trjánum, bless.

Bé-ið

push/click arrows to scroll.






::photo moto::


::sú var tíðin::



maystar designs | maystar designs | maystar designs