.................................................
You'll laugh. You'll cry. You'll hurl.
fimmtudagur, desember 09, 2004

Ég var að dusta mig í gegnum þykkt ryklag af gömlu dóti í kassa í leit að hinum heilaga gral sem að þessu sinni var forláta tússpenni, þegar ég rakst á gamlan vin. Þessi vinur var ekki af holdi og blóði heldur úr brundi!... nei djók, pappír. Þetta var dagbókin mín frá því sumarið fyrir menntó og meira eða minna allt busaárið mitt. Þetta taldi ég ágætis fund enda man ég einhverra hluta vegna ekkert eftir busaárinu mínu.
Mér til mikillar skelfingar komst ég að því að ég var vælandi gelgja á þeim tíma svo heilinn minn hefur sniðuglega blokkað það tímabil úr minni mínu. Þegar mér varð þetta ljós kastaði ég frá mér bókinni í ofboði og hún brann upp til agna meðan illur hlátur heyrðist í fjarska....
...
Í gær fór ég skólann í buxum sem voru með vandræðalega stóru gati í klofinu. Ég hugsaði því með mér að nú gæti ég séð við gatinu eitt skipti fyrir öll og dæmt það til dauða með nál og tvinna sem ég og greip með mér í skólann. Í fyrsta hléinu settist ég svo inn á klósett, saumaði fyrir gatið með glæsibrag og stökk út með dansspori í bættum og betri buxum.
En þegar ég var að bogra og beygja mig í næsta tíma heyrði ég skerandi rifhljóð. Ég rykktist upp og þreyfaði á klofinu og komst að því að þar var allt í góðu. Hins vegar var mér e-ð skringilega kalt á stórum afturenda mínum og fann þá fyrir gati á stærð við almannagjá á honum miðjum. Ég, sem var í mjög efnislitlum nærbuxum þennan dag, stóð með hendur á rassi og snerist í hringi í örvæntingu og hljóp loks aftur inn á klósett með nálina og tvinnan á lofti og þakkaði almættinu fyrir að vera með þá félaga í farteskinu.
En ég komst s.s. að því að klofgatið var ekki óvinur minn, heldur buxurnar sjálfar og einn daginn munu þær stefna mér í glötun...

---
Það er þá ljóst með hávísindalegri skoðanakönnun að gefmerfive (22%)er fyndara en Southpark (8%), Futurama (10%) og næstum því jafn fyndið og Simpsons (23%) sem slefaði upp fyrir okkur á síðustu mínútum. Family guy (38%) er þó talinn yfirburða fyndastur og í verðlaun gefum við honum five, respect.

P.s. bendum á nýja vísindalega skoðanakönnun
SSheila He-mansdóttir

push/click arrows to scroll.






::photo moto::


::sú var tíðin::



maystar designs | maystar designs | maystar designs