| ................................................. |
| You'll laugh. You'll cry. You'll hurl. | |
|
sunnudagur, janúar 02, 2005
Hér má krassa: Blóðbaðið í Garðabæ. Ég er veik og ég er að fara í endajaxlatöku (a.k.a. aftöku). Aftakan fer fram í Garðabæ við Garðatorg. Tannlæknirinn minn var hress um daginn og sagði að ég þyrfti ekki að koma fyrr en næstu jól í endajaxlatöku, svo sagði hann að það væri ekki hægt að hitta svertingja í Garðabæ því að þeir byggju allir í Mjóddinni. Svo fór ég í fyrsta sinn inn í Hagkaup í Garðabæ um daginn og þar var enginn annar viðskiptavinur nema ég og einn svertingi. Þá hringdi tannlæknirinn minn í mig og sagðist hafa ruglast, ég ætti að koma sem allra fyrst til að taka endajaxlana, helst í byrjun janúar. Tannlæknirinn minn virðist allraf hafa rangt fyrir sér, hann á eftir að taka vitlausan jaxl með vitlausu verkfæri og gefa mér vitlaus verkjalyf. Auður Maggan mín er komin heim. Hún segist hafa lært mikið af dvölinni erlendis. Enginn veit samt hvað það var sem hún lærði. Af sögunum að dæma var hún mestmegnis drukkin að tala um kynlíf. Ég hef í hyggju að fara að læra líka svona mikið á næstunni, þess vegna ætla ég mér að stunda ósvífnar námsaðferðir næsta haust. Það var mitt áramótaheit. Blossi 896246485 Besti bragðarefurinn minn: kókosbolla, hnetusmjör og þristur
push/click arrows to scroll.
|
::photo moto:: ::sú var tíðin:: |