.................................................
You'll laugh. You'll cry. You'll hurl.
laugardagur, febrúar 26, 2005

Þegar ég kom til vinnu á nýju höfuðstöðvar GMF í Asíu fyrir viku síðan, þá var búið að eitra fyrir starfsmönnum GFM með MSG kryddi. Sumir sprungu í loft upp og aðrir lippuðust niður ofaná lyklaborð sín sem sofandi væru (lesist: Ég er löt, mig vantar vinnu (kvöld- og helgarvinnu) og ég spila svo mikið af tölvuleikjum að þegar ég reyni að blogga er ég svo þreytt í hausnum að ég lippast niður á gólf). Vegna þessa höfum við ekki skrifað neitt mjög lengi, megi sálir starfsmanna okkar hafa það frekar nice (lesist: mig langar í nýkreistan appelsínusafa, hann ku vera orkuríkur).

Þótt að BB sé löt þá er Dj-amma ekki löt. Hún er nýkomin frá Póllandi þar sem hún tók þátt í alþjóðlegu dj-móti ungra letingja.
Síðan var ferðinni heitið til Þýskalands þar sem Dieter nokkur tók Dj-ömmu cover gig, hér má sjá Dieter, fínn gæi hann Dieter. Í Þýskalandi rifjuðum við upp gamlar minningar frá því á sokkabandsárum Ömmu (svipuðum og sokkabandsárum Bítlanna í Hamborg) en þá var árið 1997 og þetta var dagskráin:

Boom Boom Club "Brazil Night"

Freitag, 31. Oktober 1997

Nachtwerk Club in München

Beginn : 22.30 - 4.00 Uhr
Eintritt : 15,-DM
DJ AMMA (Boom Boom Club - Iceland)
DJ MERLIN (Boom Boom Club - Germany)
DJ PABLO (Boom Boom Club - Germany)
(nánari upplýsingar hér)

Já,nú eru víst bloggfærslunar búnar að vera í lakari kantinum. Það er ágætt, fólk getur bara hringt í GMF ef það vill eitthvað vera að tala við okkur. Það getur líka komið upp í rúm til okkar þar sem við eyðum drjúgum tíma, reyndar er rúmið á undanhaldi, því nú ber bráðum til að tilkynning komi frá Háskóla Íslands að skrásetja skuli margar ritgerðir, er það er gert er önnin er hálfnuð. Fer þá hver úr sínu rúmi til heimatölvu sinnar og lætur skrásetjast. Eins og svo oft áður verð ég þá stödd á miðöldum og þigg því einungis boð þar sem mjöður eða blóðugir bardagar koma við sögu (undantekningar ná vissulega í gegn).

Kláraði einhvern risavaxinn belg af hvítvíni á föstudaginn og er enn með svo mikinn hausverk að ég held enn þá í þá kunnu grillu að ætla aldrei að drekka aftur. Það var samt gaman, sérstaklega þar sem Auður Magga gerðist mjög vinstri sinnuð á nikkuna.

Bingó Bjössi

push/click arrows to scroll.






::photo moto::


::sú var tíðin::



maystar designs | maystar designs | maystar designs