.................................................
You'll laugh. You'll cry. You'll hurl.
laugardagur, mars 12, 2005

djí djei maður,
þetta TOEFL (enskupróf sem maður verður víst að taka ef maður sækir um í háskólum utan Evrópu) próf í gær stóð yfir í meira en 4 klukkutíma.
Það mátti ekki hafa neitt að drekka eða snæða með, og ekki mátti fara á klósettið, og það var nú leiðinlegt fyrir mig því vegna þessa gat ég hvorki drekkt mér í svalafernu né klósettskál. Þetta var löng setning en samt ekkert á við þessa rúmu 4 tíma. Fólk sem segir að þetta próf sé létt getur bara... þótt það létt... í friði...fyrir mér.
Mér fannst það ekkert létt, spurningarnar voru í sjálfu sér ekki erfiðar en það var farið svo hratt í allt, ég var sko í mestu vandræðum með að hlusta á "the supervisor" áður en prófið byrjaði. Ég átti að skrifa nafn mitt á prófið, en ekki þess sem ég sat við hliðiná, ég átti líka að athuga hvort að allar blaðsíðurnar væru þarna, en ég vissi ekkert hvað þær áttu að vera margar og... já það voru svona ýmisleg vandræði í gangi. En.. ég veit ekki hvernig gekk, það verður bara að koma í ljós, sem rímar við drós, en þannig líður mér núna, ég er lélegíenskudrós.

Mig langar mjög mikið í digital myndavél en nú eru góð ráð dýr, ég hef ekkert til að taka myndir af, sérstaklega ef þetta TOEFL próf fokkast upp. Ég sem hélt að ég væri bara á leið á eitthvað kóralarif í Eyjálfu. Jæja ég get svo sem tekið myndir af kisu og pabba og svona, þetta venjulega dót, sem er samt mjög gott dót.
Ef einhver sem les þetta hefur einhverjar hugmyndir um digital myndavélar sem gætu nýst 22 ára stúlku með takmarkaða ljósmyndahæfileika, þá má sá og hin sami láta ljós sitt skína í commentakerfinu. Þar sem afmæli nálgast, gæti nefnilega verið að maður fari að P.L.Ö.G.G.A, ef þið skiljið hvert ég er að fara....


Pabbi og kisa, hversdagslíf mitt í hnotskurn

Elsa er farin til Washington CD, eins og Rut heldur alltaf að borgin heiti, og ég og Auður M. flytjum á mölina 101 í næstu viku.
Nýja herbergið mitt er mjög stórt, stórt sem salur sé. Ég ætla kannski að fara að gera það út til myndlistarsýninga, sem minnir okkur á það að:

Svala og félagar eru að sýna verk sín í Gallerý Tukt - Hinu Húsinu, á næstu dögum. Stuttmynd hennar um egg sem fer í ferðalag og kynnist hörmungum heimsins getur eflaust kennt okkur ýmislegt um það hvað útlönd eru ömurleg og að það sé bara fínt að falla á TOEFL prófi, Testing of english as fucking li...lipstick..eða eitthvað.. verra...sem byrjar á -l.. en mér dettur ekkert annað í hug núna.


Aukaefni: Jesús á asnanum og þjáði hesturinn með þvottaklemmuna (Mos11:45)

Ba ba ba Barbara Ann

P.s. Ég samhryggist þeim vinkonum mínum sem hugsuðu sér gott til glóðarinnar í gær með því að sameinast yfir rugluðu Idoli en þó með tali. Frétti að partýið hafi endað á því að horfa á Disney myndina á RÚV. Sá reyndar eina góða um daginn um einhvern svissneskan drengjakór. Þeir ríku sungu en hinir fátæku fóru alltaf óvart að jóðla. Hún var mjög skemmtileg.

push/click arrows to scroll.






::photo moto::


::sú var tíðin::



maystar designs | maystar designs | maystar designs