| ................................................. |
| You'll laugh. You'll cry. You'll hurl. | |
|
þriðjudagur, mars 01, 2005
Ég, Svala, hér með slæ á allar sögusagnir um að ég hafi verið étin af hákarli í Karabíahafinu og þar með ófær um að blogga. Ennfremur vísa ég því á bug að Bryndís hafi eitrað fyrir mér til þess að ná meirihlutaeign í heimsveldi GMF og Dj-Ömmu og þar með ná heimsyfirráðum. Þetta er allt lýgi og gróusögur. Ástæðan fyrir fjarveru minni í bloggheimum er sú að ég lá á sjúkrahúsi eftir að hafa verið bitin af grimmum hárkarli. Fyrir viku síðan mætti ég mjög þreytt í skólann eftir að hafa vakið til 7 deginum áður við að klippa stuttmynd um egg. Við tók þrotlaus verkefnavinna svo að Svala fékk næstum enga hvíld, ónei, ónei. Næstu dagar eru ekki kræsilegir á að líta því bráðum þarf að skila möppum í listaháskóla sem er ekkert grín, ekkert til að hlægja að, nó djók. Þeir sem vilja senda mér samúðar- & vorkunnare-mail geta sent það á svöluvæl@pepsivæl.is eða á svalar@gmail.com. En nú er það að vinna, það dugar ekkert minna, trallallalllallallalllallallalllalllalllaltrallallall trallalalallala.......ræræ. (Og með þessum orðum kvaddi Svala þennan heim)
push/click arrows to scroll.
|
::photo moto:: ::sú var tíðin:: |