| ................................................. |
| You'll laugh. You'll cry. You'll hurl. | |
|
miðvikudagur, mars 23, 2005
Lífið liður allt of hratt, í gær byrjaði ég að fylla út umsókn í masters-nám, frekar sveitt. Ég sem hef ekki einu sinni alveg ákveðið hvað ég vil læra í BA en svo er ég bara að verða BA sjálf og, ég veit ekki, kannski maður verði bara BABA ef ég meika ekki MA strax og fer bara í eitthvað annað í BA og svo get ég farið í MA seinna og orðið BABAMA og...og...BA BA BA.. Keppnin gekk fram úr björtustu vonum er þriðji keppandinn skráði sig í dag til þátttöku (mörg -t) en múgur og margmenni hafa stoppað mig af víðsvegar um bæ og ból og sagst hafa áhuga og ánægju af. Ein stúlka dró mig áðan heim til að sýna mér allar myndirnar sínar og krafðist aðstoðar við valið en ég skellti fartölvunni á fingur hennar og sagðist frekar lífið láta. Þá fór hún að spila Careless Whisper og einhver lög með Roxette og Bonnie Tyler og ég fór að gráta, en segjum ei meir. Keppendurnir 3 eru: Ásta hin skásta - sem keppir fyrir hönd Esbjergs DK. Kung Fu Keli - sem er nýráðinn til starfa í Tokyo. ManHallan - sem er fyrrverandi útibússtjóri í New York. Við bíðum m.a. spennt eftir sendingum frá La France, Færeyingafélaginu fráa og Njallanum. Aldrei að vita nema möltumærin og femíniski gubbu- og aðsvifasjúklingurinn láti sjá sig. Allir mega vera með, sjá auglýsingu hér neðar. En talandi um gubbusjúklinga, það var einn ástvinur minn sem varð mjög lasinn í dag vegna gubbu og tek ég það mjög nærri mér vegna aðsvífandi áfalls sem ég býst við í morgunsárið. Þú gubbusjúklingur! Ef þú lest þetta þá er þín saknað, heyriru það Gubbi Gubbason? Af Svölu í Jórvík er víst allt illa gott og feitt og allt það að frétta. Fékk sms sem var einhvernveginn svona: Argh! illa feitt, geeeeeðveikt...OMG vá vá vá...vúhhh framhald: hhhvúhhhvú...allright.. fette fed og fat,djí vá vá v Ég á í miklum vandræðum með einn mann sem ég kannast við úr HÍ. Í HÍ hef ég löngum séð hann og þá er hann ekki með gleraugu. En svo þegar ég sé hann að næturþeli í bænum þá er hann alltaf með mjög stór gleraugu, og ég hef sko séð hann oft. Þegar hann er með þessi gleraugu þá þori ég ekki að kinka til hans kolli, því kannski er þetta ekki sami gaurinn, samt er hann eins, nema bara ekki með gleraugu. Lois Lane vandamálið fræga og mér sem fannst þessi gleraugnapæling fáranleg. Ég hef því undanfarið alltaf látið eins og ég taki ekki eftir honum, sem er samt erfitt af því að hann er með svo fáránlega stór gleraugu. Og af hverju ætti hann að vera með gleraugu á djamminu en ekki á nebbanum í skólanum? Er hann með einglyrni í skólanum? Er þetta dulargervi? Er hann kannski bara eitthvað ba ba ba? Sure-minator Bring on the Beer
push/click arrows to scroll.
|
::photo moto:: ::sú var tíðin:: |